Verkin tala

Jóhanna hefur alla tíð staðið vörð um þá sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Það sannaði hún ekki síst í síðustu ríkisstjórn þar sem hún tryggði öryrkjum betri kjör en þeir höfðu áður  þekkt. Sjálfstæðismenn  sögðu  þá  að  henni væri ekki treystandi fyrir forsætisráðherrastólnum m.a. vegna þess að hún eyddi of miklu í félagslegakerfið.  Það var þá eitthvað til að hafa áhyggjur af .


mbl.is Vilja verja velferðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Engum einum stjórnmálamanni eiga fatlaðir eins mikið að þakka og Jóhönnu Sigurðardóttur. Jóhanna barðist eins og ljón fyrir bættri velferð fötluðum til handa, þegar hún var félagsmálaráðherra. Hún stóð að lögunum um málefni fatlaðra á sínum tíma og kom þeim í höfn. Því miður í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var minna um uppbyggjandi aðgerðir og fatlaðir fundu aldrei á eigin skinni fyrir hinum svokallaða góðæristíma. Þvert á móti, voru sífelldar sparnaðaráætlanir í gangi á þessum árum  í allri þjónustu er snéri að fötluðum. 

Blessun fylgi störfum Jóhönnu Sigurðardóttur,  áfram, sem hingað til.

Kolbrún Bára 

Kolbrún Bára (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband